Auglýst eftir konum

Framkvæmdir í Lystigarðinum.
Framkvæmdir í Lystigarðinum.

Nú eru í auglýsingu störf hjá tveimur stofnunum Akureyrarbæjar þar sem sérstaklega er auglýst eftir kvenfólki til starfa. Þetta er gert á grundvelli 26. greinar laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Einnig er vísað til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í störf.

Reynt er að forðast það að til verði karla- eða kvennavinnustaðir en verulega hefur hallað á hlut kvenna hjá umhverfismiðstöð og Slökkviliði Akureyrar og því er nú auglýst sérstaklega eftir konum til starfa á þesum stöðum.

Slökkvilið Akureyrar óskar eftir að ráða konur í störf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í afleysingar. Um er að ræða afleysingastörf vegna sumarleyfa starfsmanna 2018 við sjúkraflutninga, slökkvistörf og önnur almenn störf slökkviliðsins. Gera má ráð fyrir 5-7 mánaða starfstíma. Sjá auglýsingu.

Umhverfismiðstöð auglýsir eftir konum í fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf við fegrun bæjarins og umhirðu bæjarlandsins en þá er átt við götur og gangstéttir, garða og opin svæði. Sjá auglýsingu.

Umsóknarfrestur um störfin hjá umhverfismiðstöð og slökkviliði er til og með 1. mars nk.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan