Auglýst eftir bæjarstjóra

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Auglýst er eftir bæjarstjóra á Akureyri. Starf bæjarstjóra er fjölbreytt, krefjandi en um leið gefandi og viðburðarríkt. Leitað er að aðila sem er atorkusamur, metnaðarfullur og tilbúinn að leggja sig allan fram, býr yfir góðri reynslu og hefur einlægan áhuga á að ná árangi í starfi. Viðkomandi þarf að eiga góð samskipti fyrir hönd bæjarfélagsins og vera talsmaður þess í samskiptum við íbúa, fjölmiðla, viðskiptavini og opinbera stjórnsýslu.

Starfssvið:

  • Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins og sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af bæjarstjórn og bæjarráði
  • Bæjarstjóri undirbýr og situr fundi bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt
  • Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna bæjarfélagsins og nánari útlistun á hlutverki bæjarstjóra er að finna í 50. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Þekking og reynsla af stefnumótun er kostur
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til árangurs
  • Hæfni í að tjá sig í ræðu og riti

Upplýsingar veita:

Sverrir Bríem, sverrir@hagvangur.is

Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is

Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 19.000 manns og er hann sá langfjölmennasti utan höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland.

Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfar eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess. Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áfangastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert.

Umsóknarfrestur til 2. júlí 2018.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan