Átt þú rétt á tómstundastyrk?

Frestur til að sækja um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum hefur verið framlengdur til 31. júlí 2021. Stór hluti þeirra sem eiga rétt á styrknum hefur ekki enn sótt um.

Styrkirnir eru liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 og koma til viðbótar hefðbundnum frístundastyrkjum sveitarfélaga.

Hægt er að sækja um fyrir börn sem eru fædd 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars-júlí 2020. Styrkurinn nemur 45.000 krónum á hvert barn. Nota má styrkina til þess að greiða niður þátttökugjöld vegna íþróttaiðkunar, tónlistarnáms eða annarra tómstunda.

Sveitarfélög annast afgreiðslu umsókna. Svona er sótt um hjá Akureyrarbæ:

  • Byrjaðu á að kanna hvort þitt barn eigi rétt á styrk á island.is eða með því að smella hér. Ef viðkomandi á rétt á styrk þá þarf að nálgast staðfestingu á því og skila með umsókn.
  • Næst er farið inn í þjónustugátt Akureyrarbæjar og umsóknarformið opnað (umsóknir -> velferðarmál -> fjárhagsstyrkur til íþrótta- og tómstundaiðkunar).
  • Umsóknarformið er fyllt út. Undir "fylgiskjölum" þarf að setja inn staðfestinguna (sem var sótt á island.is) og kvittun fyrir greiðslu frá íþrótta- eða tómstundafélögum. Skjölin mega vera pdf eða skjámyndir á jpg formi.

Fólk getur fengið aðstoð hjá velferðarsviði Akureyrarbæjar við að fylla út umsóknirnar í þjónustugáttinni með því að hringja í síma 460-1410.

Hér er hægt að horfa á kynningarmyndbönd um íþrótta- og tómstundastyrkina á nokkrum tungumálum.

Umsóknarfrestur rennur út 31. júlí.

English and Polish:

Grants for sports and leisure activities

Did you know that you may be entitled to a grant from your local authority to enable your child to play sport or take part in leisure activities? As part of the response to the COVID-19 pandemic, children born in the years 2005-2014 who live in households where the adults supporting them have a total income of less than ISK 740,000 per month, on average, in the months of March-July 2020 qualify for such grants. More information.

Dofinansowanie do zajęć sportowych i rekreacyjnych

Czy wiesz, że w związku z COVID-19 można ubiegać się o dofinansowanie z gminy, w której mieszkasz, do zajęć sportowych i rekreacyjnych dla dzieci urodzonych w latach 2005-2014 z gospodarstw domowych, gdzie średni łączny dochód był mniejszy niż 740 000 kr miesięcznie w okresie marzec-lipiec 2020. Zobacz więcej informacji

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan