Taktu þátt í að móta leiðanet SVA - frestur að renna út

Í dag, miðvikudaginn 18. nóvember, rennur út frestur til þess að koma á framfæri almennum ábendingum um fyrstu tillögur að nýju leiðaneti SVA.

Tillögurnar voru fyrst kynntar fyrir þremur vikum og hafa síðan verið auglýstar á hinum ýmsu miðlum, auk þess sem kynningarefni var sett upp á Glerártorgi. Haldinn var rafrænn kynningarfundur sem hægt er að horfa á hér.

Óskað hefur verið eftir hugmyndum og ábendingum frá íbúum, til dæmis varðandi legu leiða og staðsetningu stoppistöðva. 

Allar helstu upplýsingar um verkefnið eru á sérstöku vefsvæði hér á heimasíðunni, en þar eru einnig leiðbeiningar um hvernig er hægt að hafa áhrif. Bæði er hægt að senda inn ábendingu í gegnum gagnvirkt kort og í gegnum netfangið nyttleidanet@akureyri.is. 

Ljóst er að mikill áhugi er á endurskoðun leiðakerfisins meðal bæjarbúa og hafa fyrstu tillögur vakið athygli. Hátt í 100 ábendingar hafa borist og er viðbúið að enn fleiri bætist við í dag. Áhersla hefur verið lögð á að ná til sem flestra hópa samfélagsins og að allir sem vilja geti komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Sérstaklega hefur verið leitað til hverfisnefnda, félaga og skilgreindra hagsmunahópa og boðið upp á samtöl og óskað eftir umsögnum. 

Verkefninu er hvergi nærri lokið, því nú taka sérfræðingar aftur við boltanum og endurskoða tillögurnar í ljósi þeirra ábendinga og upplýsinga sem hafa komið fram í samráðsferlinu. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan