Átak gegn matarsóun í Lundarskóla

Úr mötuneyti Lundarskóla.
Úr mötuneyti Lundarskóla.

Á dögunum var efnt til sérstaks átaks gegn matarsóun í Lundarskóla. Átakið stóð í eina viku.

Umræða um almenna matarsóun fór fram í öllum árgöngum skólans og allir fengu tækifæri til að leggja sitt af mörkum við að minnka matarsóun. Átakið gekk mjög vel og sá árgangur sem henti minnsta matnum fékk í umbun að velja hvað verður á matseðlinum í skólanum þann 21. febrúar nk. Það var 10. bekkur sem bar sigur úr býtum.

Fyrir átakið henti Lundarskóli daglega um 30 kílóum af matarafgöngum. Í lok átaksins hafði innan við 14 kílóum verið hent á heilli viku sem verður að teljast frábær árangur. Þess má geta að nemendur borðuðu vel, hentu minni mat en borðuðu jafn mikið eða jafnvel meira í sumum tilfellum.

Nemendur voru almennt mjög áhugasamir og meðvitaðir um matarsóunina, fengu sér hæfilegt magn af mat á diskinn, fóru fleiri ferðir ef þeir vildu og kláruðu af diskunum sínum. Allir stóðu sig mjög vel í átakinu.

Áætlað er að fylgja átakinu eftir og vigta afgangana nokkrum sinnum fram á vorið og þá fær sá árgangur sem hendir minnstu umbun fyrir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan