Ársskýrslan komin út

Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2017 er komin út. Lítil spurn hefur verið eftir að fá skýrsluna prentaða á liðnum árum og því verður hún ekki prentuð að þessu sinni frekar en síðustu tvö árin. Það er hvort tveggja umhverfisvæn aðgerð og felur um leið í sér dálítinn sparnað fyrir sveitarfélagið.

Óski einhver eftir að fá skýrsluna á pappír þá getur viðkomandi snúið sér til þjónustuanddyris Akureyrarbæjar í Ráðhúsinu að Geislagötu 9.

Ársskýrslur bæjarins og fleira útgefið efni má nálgast hér á heimasíðunni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan