Á morgun laugardaginn 23. febrúar er Gildagur í Listagilinu og verður það lokað fyrir bílaumferð frá kl. 14-17.
Dagskrá Gildagsins er fjölbreytt og búast má við góðri stemningu um allt í Listagil. Á Listasafninu verður opnuð samsýningin Sköpun bernskunnar 2019 en þetta er sjötta sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp til þess að örva skapandi starf og hugsun skólabarna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur í ár eru Kristinn E. Hrafnsson, Rósa Kristín Júlíusdóttir, Hlíðarskóli og 25 fimm ára börn frá Leikskólanum Kiðagili.
Jafnframt verða opnar vinnustofur í Listagilinu og verslanir verða með tilboð í tilefni dagsins.
Nánar er hægt að glöggva sig á lokun Listagilsins á meðfylgjandi mynd.
Hægt er að skoða dagskrá Gildagsins á gildagur.is