Aldís Kara og Viktor eru íþróttafólk Akureyrar 2020

Aldís Kara Bergsdóttir og Viktor Samúelsson eru íþróttafólk Akureyrar 2020! Mynd: Þórir Tryggvason.
Aldís Kara Bergsdóttir og Viktor Samúelsson eru íþróttafólk Akureyrar 2020! Mynd: Þórir Tryggvason.

Skautakonan Aldís Kara Bergsdóttir úr SA er íþróttakona Akureyrar árið 2020 og kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson úr KFA er íþróttakarl Akureyrar 2020. Í öðru sæti voru þau Miguel Mateo Castrillo blakari úr KA og Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona úr UFA. Í þriðja sæti voru Þorbergur Ingi Jónsson utanvegahlaupari úr UFA og Gígja Guðnadóttir blakari úr KA.

Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2020 var lýst á verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og frístundaráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi seinnipartinn í dag. 14 aðildarfélög ÍBA tilnefndu alls 38 íþróttamenn úr sínum röðum, 17 íþróttakonur og 21 íþróttakarl. Úr þeim tilnefningum var síðan kosið á milli 10 karla og 10 kvenna sem stjórn Afrekssjóðs hafði stillt upp.

Á athöfninni veitti frístundaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar til 8 aðildarfélaga ÍBA vegna 140 Íslandsmeistara á síðasta ári og Afrekssjóður veitti 10 afreksefnum styrki. Samtals hlutu 20 einstaklingar afreksstyrki sem námu samtals rúmum 5 milljónum króna.

Aldís Kara er íþróttakona Akureyrar annað árið í röð sem og skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands annað árið í röð. Þannig skipar Aldís Kara sér sess sem besti skautari landsins. Á árinu 2020 keppti Aldís Kara á RIG2020 þar sem hún fékk 113.54 stig og náði lágmörkum á heimsmeistaramót unglinga í stuttu prógrami, þá í annað sinn á keppnistímabilinu. Á Norðurlandamótinu í Stavanger í Noregi fékk Aldís Kara 115.39 stig, sem er jafnframt hæsti stigafjöldi sem íslenskur skautari hefur fengið á Norðurlandamóti. Á mótinu náði Aldís Kara lágmarks stigum fyrir heimsmeistaramót unglinga í frjálsu prógrammi og varð þar af leiðandi fyrsti skautari Íslands sem nær þeim árangri. Aldís Kara keppti á heimsmeistaramóti unglinga í Tallin í Eistlandi. Þar stóð hún sig með prýði og endaði í 35. sæti af 48 keppendum.

Viktor á langan afreksferil að baki og er þetta í fimmta skipti sem hann er kjörinn íþróttakarl Akureyrar. Á árinu 2020 varð Viktor í fyrsta sæti á Reykjavík International Games í klassískum kraftlyftingum. Á Íslandsmótinu í réttstöđulyftu sló Viktor eina Íslandsmetiđ sem hann átti ekki sjálfur í -120 kg flokki, þegar hann lyfti 338 kg. Viktor lenti í öđru sæti í stigakeppninni eftir harđa baráttu viđ ríkjandi heimsmeistara í réttstöđulyftu. Viktor keppti í -105 kg flokki á Íslandsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum þar sem hann tvíbætti Íslandsmetin í bekkpressu og réttstöđulyftu og þríbætti íslandsmetin í samanlögđu. Viktor er stigahæsti klassíski kraftlyftingamađur ársins 2020 hjá Kraftlyftingasambandi Íslands.

Á athöfninni voru kynntar heiðursviðurkenningar sem frístundaráð Akureyrar veitti þremur einstaklingum fyrr í dag fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta á Akureyri. Hreiðar Jónsson fékk viðurkenningu fyrir áratuga starf í þágu íþrótta, m.a. frjálsíþrótta og handbolta á Akureyri. Ívar Sigmundsson fékk viðurkenningu fyrir áratuga starf í þágu skíðaíþrótta á Akureyri og Íslandi. Ingibjörg Anna Sigurðardóttir fékk viðurkenningu fyrir mikið og óeigingjarnt starf að heilsueflingu almennings í vatnsleikfimi.

Heiðursviðurkenningar frístundaráðs voru veittar fyrr í dag. Frá vinstri: Eva Hrund Einarsdóttir formaður frístundaráðs, Hreiðar Jónsson, Ingibjörg Anna Sigurðardóttir, Ívar Sigmundsson og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Þetta er í 42. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er kjörinn en það var fyrst gert árið 1979. Alls hafa 25 einstaklingar hlotið þetta sæmdarheiti, oftast allra júdókappinn Vernharð Þorleifsson, sjö sinnum alls.

Íþróttamenn Akureyrar 1979-2020:
1979 Gunnar Gíslason, handknattleikur og knattspyrna
1980 Haraldur Ólafsson, lyftingar
1981 Haraldur Ólafsson, lyftingar
1982 Nanna Leifsdóttir, skíði
1983 Nanna Leifsdóttir, skíði
1984 Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1985 Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1986 Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1987 Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1988 Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1989 Þorvaldur Örlygsson, knattspyrna
1990 Valdemar Valdemarsson, skíði
1991 Rut Sverrisdóttir, sund
1992 Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1993 Vernharð Þorleifsson, júdó
1994 Vernharð Þorleifsson, júdó
1995 Vernharð Þorleifsson, júdó
1996 Vernharð Þorleifsson, júdó
1997 Ómar Halldórsson, golf
1998 Vernharð Þorleifsson, júdó
1999 Vernharð Þorleifsson, júdó
2000 Ingvar Karl Hermannsson, golf
2001 Vernharð Þorleifsson, júdó
2002 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2003 Andreas Stelmokas, handknattleikur
2004 Rut Sigurðardóttir, Tae Kwon Do
2005 Guðlaugur Már Halldórsson, akstursíþróttir
2006 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2007 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2008 Rakel Hönnudóttir, fótbolti
2009 Bryndís Rún Hansen, sund
2010 Bryndís Rún Hansen, sund
2011 Bryndís Rún Hansen, sund
2012 Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrna
2013 Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2014 Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2015 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016 Bryndís Rún Hansen, sund
2017 Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur
2017 Stephany Mayor, knattspyrna
2018 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2018 Hulda B. Waage, kraflyftingar
2019 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2019 Aldís Kara Bergsdóttir listhlaup
2020 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2020 Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan