Álagning fasteignagjalda 2022

Álagningu fasteignagjalda er lokið hjá Akureyrarbæ og eru álagningarseðlar aðgengilegir fasteignaeigendum í þjónustugátt sveitarfélagsins og á island.is.

Álagningarseðlar eru ekki sendir út á pappír og sparar það bæði fé og fyrirhöfn fyrir utan að vera mun umhverfisvænna. Eftir sem áður geta þeir sem þess óska fengið álagningarseðil á pappír með því að fylla út umsóknarform í þjónustugáttinni.

Álagningarprósenta fasteignaskatts er óbreytt á milli ára, 0,33% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis, 1,63% af öðru húsnæði og 1,32% af fasteignamati skóla, sjúkrahúsa, bókasafna og íþróttahúsa.

Heildarálagning fasteignagjalda ársins 2022 eru 4,5 milljarðar króna, þar af er fasteignaskattur 2.616 milljónir króna, lóðarleiga er 580 milljónir króna, vatnsgjald er 360 milljónir króna, fráveitugjald 546 milljónir og sorphirðugjald 362 milljónir. Sorphirðugjald er lagt á 8.572 heimili sem er fjölgun um 180 heimili frá fyrra ári. Á árinu 2021 nam álagning fasteignagjalda samtals 4.220 milljónum króna.

832 lífeyrisþegar fá afslátt

Bæjarstjórn samþykkti breytingu á reglum um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum og hækkaði tekjumörk. 832 elli- og örorkulífeyrisþegar fá afslátt og nemur heildarfjárhæð afsláttar tæplega 63 milljónum króna eða 75.160 krónur að meðaltali. Afslátturinn er mishár eftir tekjum en getur hæst farið í 117.700 krónur. 123 fasteignaeigendur njóta hámarksafsláttar. Auk þess njóta 272 fasteignaeigendur fulls afsláttar af sínum fasteignasköttum. Árið áður nutu 718 afsláttar af fasteignaskatti og nam heildarfjárhæðin 57 milljónum króna.

Reglurnar er hægt að nálgast hér. Afsláttur af fasteignaskatti er reiknaður út frá tekjum samkvæmt skattframtali 2021 og þarf ekki að sækja sérstaklega um.

Allar greiðslur í heimabanka

Ekki er lengur boðið upp á greiðslu fasteignagjalda með boðgreiðslum á kreditkort. Allar greiðslur fara fram með kröfu í netbanka. Vakin er athygli á þeim möguleika að skrá kröfur í beingreiðslu, það er hægt að gera í netbanka eða hjá viðskiptabanka greiðanda.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan