Frábærar aðstæður til útivistar

Í dag og um helgina hefur verið lögð sérstök áhersla á að moka og hreinsa vel göngustíga innan bæjarins til að auðvelda íbúum að stunda hreyfingu og njóta útiveru. Þetta er raunar hluti af aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru í samfélaginu, nú þegar margir þurfa að vera mikið heima og hefðbundið íþróttastarf getur raskast.

Það hefur snjóað býsna mikið undanfarna viku, en búið er að moka allar helstu leiðir í bæjarlandinu, þar á meðal inn í Kjarnaskóg og hreinsa öll bílastæði þar og við Hamra.

Því er tilvalið að skella sér í göngu- eða hjólatúr um bæinn í dásamlegu veðri, fara í Kjarnaskóg eða Naustaborgir þar sem er líka flott gönguskíðafæri. Einnig er verið að ljúka við að hreinsa bílastæði við skúr Norðurorku á Súluvegi fyrir þá sem vilja ganga upp að Fálkafelli.

Eins og flestir vita skiptir regluleg hreyfing okkur miklu máli og sérstaklega á tímum sem þessum. Allir sem eiga þess kost eru hvattir til að hreyfa sig og nýta fjölbreytta útivistarmöguleika á Akureyri. 

Hér eru nokkrar nýjar myndir sem María H. Tryggvadóttir, verkefnastjóri á Akureyrarstofu, tók á ferð sinni um bæinn. Smelltu á myndirnar til að stækka þær: 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan