Akureyri ljósum prýdd

Starfsmenn umhverfismiðstöðvar Akureyrarbæjar byrja að tendra jólaljósin vítt og breitt um bæinn á allra næstu dögum.

Þar með fer bærinn okkar í jólaklæðin og er skorað á bæjarbúa að láta ekki sitt eftir liggja heldur tendra jólaljósin við heimili sín og lýsa þannig upp svartasta skammdegið.

Hugum vel hvert að öðru í kærleika og birtu jólaljósanna. Munum að virða allar sóttvarnareglur og förum varlega.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan