Akureyri í jólabúningi

Áhersla hefur verið lögð á að skreyta bæinn vel að undanförnu og lýsa upp svartasta skammdegið. Starfsfólk Akureyrarbæjar byrjaði fyrr en venjulega að tendra jólaljósin, auk þess sem ákveðið var að bæta við nýjum jólaskreytingum á almennum svæðum. Var þetta einkum gert til að bregðast við óvenjulegum aðstæðum í samfélaginu og lágstemmdari aðventu en flestir hafa vanist af völdum heimsfaraldursins.

Af nýjum jólaskreytingum má til dæmis nefna vafninga með seríum á milli ljósastaura við Gránufélagsgötu og á Ráðhústorgi, seríur í trjám í göngugötunni og kastara sem lýsa upp tré ofan við Listagil, Skátagil og Andapoll. Auk þess hafa verið settar seríur í tré við Laxdalshús.

Að venju fer mest fyrir jólaskreytingum í miðbænum og þar í kring, en þó er einnig búið að færa Kjarnaskóg í jólaklæðin með skreyttum trjám og seríum.

Þrír vagnar úr flota Strætisvagna Akureyrar hafa einnig verið skreyttir að innan með jólaseríu og greni. „Við höfum fengið töluverð viðbrögð frá farþegum. Fólki finnst þetta flott og er ánægt með að lífgað sé upp á skammdegið" segir Engilbert Ingvarsson verkstjóri hjá Umhverfismiðstöð.

Hér eru nokkrar myndir frá jólabænum Akureyri:

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan