Akureyrarbær styrkir Vísindaskólann

Sigrún Stefánsdóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson við undirritun samningsins.
Sigrún Stefánsdóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson við undirritun samningsins.

Akureyrarbær og Háskólinn á Akureyri hafa skrifað undir samning um styrk til Vísindaskóla unga fólksins. Þetta er í þriðja skipti sem Akureyrarbær styrkir verkefnið. Markmið bæjarins með styrkveitingunni er að styðja við fjölbreytni í tómstundatilboðum til barna og gefa börnum á Akureyri tækifæri til þess að kynnast heimi vísinda og fræða.

Vísindaskóli unga fólksins fór af stað vorið 2015 og þá sóttu um 90 börn á aldrinum 11-13 ára skólann. Viðbrögð þátttakenda hafa verið afar góð og því til staðfestingar voru yfir þriðjungur nemenda í annað sinn í skólanum síðastliðið vor, þar sem nýtt námsefni var í boði. "Það hefur komið okkur skemmtilega á óvart að strákar sækja ekki síður en stelpur í Vísindaskólann og við teljum það mjög mikilvægt. Drengir sækja síður í langskólanám í dag og þátttaka í Vísindaskólanum gæti orðið til þess að auka áhuga þeirra á að fara í háskólanám í framtíðinni," segir Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskólans.

Hópur starfsmanna Háskólans á Akureyri vinnur að þróun Vísindaskólans, en verkefnið er fjármagnað að stórum hluta með styrkjum frá ýmsum fyrirtækjum og félögum. Sigrún segir að viðbrögð samfélagsins hafi verið afar jákvæð og samningurinn við Akureyrarbæ sé ómetanlegur.

Skólagjöldin eru 22.500 kr. og Vísindaskólinn mun starfa vikuna 19.-23. júní. Lögð er áhersla á að þemu skólans tengist sem mest hefðbundnu námsframboði Háskólans. Að þessu sinni verður boðið upp á eftirfarandi þemu:

  • Það er bara ein jörð - Umhverfislögga
  • Gleðisprengja í hljóð og mynd
  • Það er leikur að læra forritun
  • Tilraunaeldhúsið - Hvað er matur?
  • Við erum ekki öll eins

Innritun í skólann hefst í apríl en allar nánari upplýsingar og skráningu verður hægt að nálgast á vefsíðu skólans www.visindaskoli.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið visindaskoli@unak.is.

Frétt og mynd af heimasíðu Háskólans á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan