Akureyrarbær styrkir Verkefnasjóð Háskólans á Akureyri

Eiríkur Björn og Eyjólfur undirrita samninginn.
Eiríkur Björn og Eyjólfur undirrita samninginn.

Undirritaður hefur verið samningur milli Akureyrarbæjar og Háskólans á Akureyri um stuðning bæjarins við Verkefnasjóð Háskólans á Akureyri og var hann undirritaður af Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra og Eyjólfi Guðmyndssyni rektor. 

Verkefnasjóðurinn kemur í stað fjölda smærri styrkja sem áður voru veittir til skólans. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna á ýmsum sviðum skólans, samstarfsstofnanna og nemendafélaga s.s. fyrir ráðstefnur eða meiriháttar samkomur, útgáfu- og kynningarstarfsemi og menningarstarf eða annað sem stjórnin telur falla að þessu reglum. Samningurinn gildir til loks árs 2019. Styrkfjárhæð er 2.000.000 milljónir  á samningstímanum. Úthlutun er í höndum þriggja manna stjórnar sem skipuð er af háskólaráði til tveggja ára í senn.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan