Akureyrarbær og AkureyrarAkademían styðja frumkvöðlastarf

Aðalheiður Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar, Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður A…
Aðalheiður Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar, Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs Akureyrarbæjar.

Akureyrarbær og AkureyrarAkademían hafa gert samstarfssamning sín á milli til næstu þriggja ára. Markmið samningsins er að styðja við frumkvöðlastarf, og um leið starfsemi Akademíunnar, með því að bjóða einstaklingum sem vinna að nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefnum upp á vinnuaðstöðu í húsnæði hennar án endurgjalds.

Starfsaðstöðunni fylgja skrifstofuhúsgögn, nettenging, aðgangur að prentara og sameiginlegri aðstöðu eins og fundaherbergi og eldhúsaðstöðu.

Gert er ráð fyrir að starfsaðstaðan verði auglýst laus til umsóknar til sex mánaða í senn fyrir einstaklinga sem vinna að verkefnum á sviði nýsköpunar eða frumkvöðlastarfs og að í haust verði auglýst í fyrsta skipti eftir umsóknum.

Samningsaðilar hafa sett verklagsreglur um auglýsingar og hvernig verður staðið að vali á þeim einstaklingum sem fá inni hjá Akademíunni hverju sinni og þær má kynna sér á heimasíðu hennar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan