Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingu á legu göngustígs í gegnum svæði Skotfélags Akureyrar og KKA, öryggismörk skotsvæðisins minnka lítillega og smávægilegar breytingar eru gerðar á legu aðrennslispípu.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar frá 27. febrúar til 10. apríl 2019, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillöguna er einnig hægt að skoða hér.


Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 10. apríl 2019 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

 

27. febrúar 2019
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan