Áhrif yfirstandandi verkfalls á þjónustu Akureyrarbæjar

Unnið að uppsetningu hraðahindrana í Listagili.
Unnið að uppsetningu hraðahindrana í Listagili.

Verkfall félagsfólks BSRB hefur umtalsverð áhrif á ýmsa þjónustu á vegum Akureyrarbæjar. Í þeim tilfellum sem verkfallið hefur áhrif skerðist starfsemi verulega eða fellur alfarið niður:

    • Strætisvagnar bæjarins ganga ekki.
    • Þjónusta ferlibíla verður verulega skert.
    • Sundlaugarnar á Akureyri verða lokaðar, sem og laugarnar í Grímsey og Hrísey.
    • Fjölskyldugarðurinn við Sundlaug Akureyrar verður lokaður.
    • Íþróttahúsið við Glerárskóla og Íþróttahöllin á Akureyri verða lokuð.
    • Þjónusta frá Umhverfismiðstöð skerðist verulega, þ.m.t. sláttur og hirðing í bæjarlandinu.
    • Malbikunarstöðin starfar ekki og þar af leiðandi frestast flestar gatna- og stígaframkvæmdir.
    • Þá mun opnunartími Ráðhúss Akureyrarbæjar skerðast en hann verður frá kl. 11.00 til 12.00. Viðskiptavinum er bent er á að nýta sér rafræna þjónustu eins og kostur er svo sem  tölvupóst, netspjall og ábendingargátt á heimasíðu.
    • Þeir sem eiga erindið við launafulltrúa Akureyrarbæjar geta bókað viðtal við þá á netinu en nánari upplýsingar þjónustuna má finna með því að smella hér

       

      .

 

Upplýsingar um skerta þjónustu verða uppfærðar eftir því sem þurfa þykir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan