Aðgerðaáætlun gegn kynbundu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum

Aðgerðaráætlun Akureyrarbæjar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum í bæjarstjórn þriðjudaginn 11. desember.

Með aðgerðaráætluninni skal unnið markvisst gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum um leið og tryggt er að þjónusta í bænum sé vel skipulögð og í fararbroddi á landsvísu. Markmið áætlunarinnar er að tryggja virkt samráð lykilaðila í sveitarfélaginu til þess að fyrirbyggja kynbundið ofbeldi, greina einkenni, bregðast við, tilkynna og veita góð úrræði fyrir börn, fjölskyldur þeirra og fullorðna einstaklinga sem hafa orðið fyrir kynbundnu eða öðru ofbeldi.

Aðgerðaráætlun Akureyrarbæjar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum 2018-2020.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan