Aðflugsæfingar á mánudag

Mynd frá Atlantshafsbandalaginu sem tekin var Norðmenn annaðist loftrýmisgæslu hér á landi í fyrra.
Mynd frá Atlantshafsbandalaginu sem tekin var Norðmenn annaðist loftrýmisgæslu hér á landi í fyrra.

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar norska flughersins. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum í nokkur skipti á tímabilinu 22. febrúar til 5. mars, ef veður leyfir.

Mánudaginn 22. febrúar gera Norðmenn ráð fyrir aðflugsæfingu að Akureyrarflugvelli sem gæti orðið á milli kl. 10–15.

Alls munu um 130 liðsmenn norska flughersins taka þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins eftir helgi með fjórar F-35 orrustuþotur og hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama hætti og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Eins og með annan erlendan liðsafla sem dvelur tímabundið hér á landi gilda strangar sóttvarnarreglur meðan á dvöl norsku flugsveitarinnar stendur. Framkvæmdin er unnin í samvinnu við Embætti landlæknis og aðra sem koma að sóttvörnum hér á landi og í Noregi.

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars.

Akureyrarbær telur rétt að koma þessum upplýsingum á framfæri við bæjarbúa þar sem nokkurt ónæði getur hlotist af aðflugsæfingum sem þessum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan