A! Gjörningahátíð hafin

A! Gjörningahátíð er fjögurra daga hátíð sem hefst í dag, fimmtudaginn 8. nóvember, og lýkur sunnudaginn 11. nóvember.

Listamennirnir og hóparnir sem taka þátt að þessu sinni eru:Aðalsteinn Þórsson (IS), Anna Sigríður Sigurjónsdóttir (IS) og Birgit Asshoff (D), Birgitta Karen Sveinsdóttir (IS), Hekla Björt Helgadóttir (IS), Kristján Guðmundsson (IS), Kviss búmm bang (IS), Paola Daniele (F), Raisa Foster (SF), Yuliana Palacios (MEX/IS), Örn Ingi tileinkun: Kolbeinn Bjarnasson (IS) og Þórarinn Stefánsson (IS). Á sama tíma fer vídeóalistahátíðin Heim fram og þar taka þátt Arna Valsdóttir (IS) og Raisa Foster (SF).

Að hátíðinni standa: Listasafnið á Akureyri, LÓKAL alþjóðleg leiklistarhátíð, Reykjavík Dance Festival, Menningarfélag Akureyrar, Leikfélag Akureyrar og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. A! er hátíð þar sem myndlistar- og sviðslistafólk fremur gjörninga og setur upp gjörningatengd verk.

Staðirnir þar sem Gjörningarnir á A! 2018 munu fara fram að þessu sinni eru: Listasafnið á Akureyri, Menningarhúsið Hof, Gil kaffihús, Kristnesskógur og Vanabyggð 3 auk fleiri staða á Akureyri.

A! Gjörningahátíð er nú haldin í fjörða sinn en hátíðin sló strax í gegn þegar hún var haldin í fyrsta skipti árið 2015 og sóttu um 1.500 ánægðir gestir hátíðina. Þátttakendur voru vel þekktir gjörningalistamenn, leikarar og ungir, upprennandi listamenn. Vídeólistahátíðin Heim var haldin á Akureyri á sama tíma.

Margrét Elísabet Ólafsdóttir listfræðingur sagði í pistli í Víðsjá á Rás 1 um hátíðina meðal annars: "Dagskrá Gjörningahátíðarinnar A! var því ekki aðeins fjölbreytt heldur í heildina einkar vel heppnuð. Sú ákvörðun að stefna saman eldri listamönnum og upprennandi, gestum og heimamönnum virðist vera góð uppskrift að hátíð sem vonandi verður árlegur viðburður."

Dagskrá A! Gjörningahátíðar.

Facebook-síða A! Gjörningahátíðar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan