A! Gjörningahátíð

A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem hófst í dag og stendur fram á sunnudag. Hátíðin er árleg og er þetta í sjötta sinn sem hún er haldin. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Sérstök dómnefnd valdi úr innsendum umsóknum listamanna og eru fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Vegna Covid-19 er hátíðin smærri í sniðum en áður og þurftu fjórir erlendir listamenn að afboða komu sína. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Vanabyggð 3 og Sæborg í Hrísey. Gætt verður að fjarlægðarmörkum og sóttvörnum.

Listamennirnir sem koma fram í ár eru: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Anna Richardsdóttir, Egill Logi Jónasson og Hekla Björt Helgadóttir, Halldór Ásgeirsson, Katrín Gunnarsdóttir og Rán Flygenring, Páll Haukur Björnsson, Steinunn Önnu - Knútsdóttir og Gréta Kristín Ómarsdóttir, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir, Erwin van der Werve ásamt Örnu Valsdóttur, Arnbjörgu Kristínu Konráðsdóttur, Brák Jónsdóttur, Freyju Reynisdóttur, Hörpu Björnsdóttur, Silfrúnu Unu Guðlaugsdóttur og Töru Njálu Ingvarsdóttur.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Gilfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri, Vídeólistahátíðarinnar Heim og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Auk viðburða utan dagskrár (Off venue).

Dagskrána má sjá á heimasíðu Listasafnsins á Akureyri, listak.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan