40 ára afmælisveisla á Lundarseli

Björg Sigurvinsdóttir, skólastjóri Lundarsels.
Björg Sigurvinsdóttir, skólastjóri Lundarsels.

Í tilefni 40 ára afmælis leikskólans Lundarsels var blásið til veislu í dag. Gestum var boðið að skoða verk eftir börnin, fræðast um skólann og gæða sér á veitingum.

Lundarsel varð 40 ára þann 1. júlí síðastliðinn, en ákveðið var að fresta afmælisveislunni vegna sumarleyfa. Reyndar hefur afmælinu nú þegar verið fagnað með ýmsum hætti. Foreldrum var til dæmis boðið í afmæliskaffi þar sem börnin komu fram og sungu. Þá settu kennarar Lundarsels upp leikrit og buðu börnunum á sýningu. Í dag var leikskólinn svo opnaður fyrir almenning.

Börnin komu með nesti í upphafi

Það breytist margt á 40 árum. Þegar starfsemin hófst 1979 voru tvær deildir í leikskólanum og dvöldu börn í hámark fjóra tíma í senn, fyrir eða eftir hádegi, og komu með nesti með sér. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, skólinn verið stækkaður í áföngum og starfsemin breyst.

Nú eru fjórar deildir á Lundarseli og dvelja um 90 börn í leikskólanum að jafnaði. Starfsmenn eru samtals 27, þar af 15 leikskólakennarar. Björg Sigurvinsdóttir, skólastjóri Lundarsels, segir að mörg þróunarverkefni hafi verið unnin í gegnum árin og fest sig í sessi. Lundarsel er heilsueflandi leikskóli, en auk þess er barnaheimspeki ein af helstu áherslum. „Börnum er eðlislægt að vera forvitin og rannsakandi og samkvæmt hugmyndafræði barnaheimspekinnar er mikilvægara að kenna börnum að spyrja spurninga en að fræða þau með endanlegum svörum. Heimspekin eflir gagnrýna, skapandi og umhyggjusama hugsun,“ segir Björg.

Björt og spennandi framtíð

„Einkunnarorð Lundarsels, „þar sem glaðir spekingar leika og læra saman“, er tilvísun í gleðina sem felst í leiknum, við að leita svara og rannsaka sjálfur. Allir eru að læra, börn jafnt sem fullorðnir,“ segir Björg. Hún segir að framtíð leikskólans sé björt. Stóra verkefni næstu ára sé að auka rými og betrumbæta aðstöðu barna og starfsfólks. „Það eru spennandi tímar framundan sem gerir gott leikskólastarf enn þá betra,“ segir Björg.

Hér eru nokkrar myndir frá afmælisveislunni: 

   

  

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan