16,4 milljónir til Akureyrar úr húsafriðunarsjóði

Minjasafnskirkjan og Nonni.
Minjasafnskirkjan og Nonni.

Í byrjun síðustu viku var tilkynnt um úthlutanir úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2020 til viðhalds og viðgerða á friðlýstum og friðuðum húsum. Akureyrarbæ var úthlutað 3,2 milljónum króna til viðhalds á Samkomuhúsinu, Nonnahúsi, Sigurhæðum og Húsi Hákarla-Jörundar í Hrísey.

Einnig er 900 þúsund krónum úthlutað til viðhalds á Minjasafnskirkjunni, 800 þúsund krónum til Lögmannshlíðarkirkju og 11,5 milljónum til viðhalds á öðrum friðuðum og friðlýstum húsum í bænum. Þau eru Hoepfnershús, Zontahúsið, Aðalstræti 17, Hafnarstræti 23, gamla Kaupfélagshúsið að Hafnarstræti 90 og gamla símstöðin að Hafnarstræti 3. Heildarlista yfir úthlutanir 2020 má sjá HÉR.

Umsækjendur um framlög úr húsafriðunarsjóði eru sveitarfélög, sjálfseignarstofnanir, félagasamtök, áhugamannahópar og einstakir húseigendur.

Við þetta er því að bæta að húsafriðunarsjóður fékk á dögunum viðbótarframlag upp á 100 milljónir króna í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar til að bregðast við efnahagslegum áhrifum Covid-19 faraldursins.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan