Útboð á veitingarekstri í Hlíðarfjalli

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar leitar eftir aðila/aðilum til að annast veitingarekstur í Hlíðarfjalli frá 1. júlí 2023.

Í Skíðahóteli er u.þ.b. 130 m² veitingasalur og ágætlega útbúið 50 m² eldhús til veitingareksturs. Í Strýtuskála er rými 120 m² á tveimur hæðum (neðri- og miðhæð) ásamt 30 m² verönd.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 17. maí 2023.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 11:00 föstudaginn 2. júní 2023.

Vinsamlegast athugið að til geta skoðað útboðsgögn sem þið hafið óskað eftir og einnig til að ljúka við að senda inn tilboð þarf að fara inn á eldri útgáfu af Þjónustugátt Akureyrarbæjar. Slóðin á hana er: https://thjonustugatt.akureyri.is/