Útboð á reglubundnu eftirliti með brunaviðvörunarkerfum

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í reglubundið eftirlit á brunaviðvörunarkerfum, neyðar- og flóttaleiðalýsinga í stofnunum Akureyrarbæjar fyrir árin 2023 - 2024.

Um er að ræða tilboð í heildarúttekt á stöðu brunavarna í stofnunum Akureyrarbæjar samkvæmt magntöluskrá.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með mánudeginum 6. febrúar 2023.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 24. febrúar 2023 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á rafrænum fundi á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.