Útboð á ræstingu Umhverfismiðstöðvar Akureyrarbæjar

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í reglulega ræstingu á hluta Umhverfismiðstöðvar frá og með 1. janúar 2022.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 1. desember 2021.
Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins.

Vettvangsskoðun verður mánudaginn 6. desember kl. 11:00

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 15. desember 2021 kl. 13:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.