Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar auglýsir til sölu hús til flutnings.

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar auglýsir til sölu hús til flutnings.

Um er að ræða hús sem hefur verið notað sem nestishús í Hlíðarfjalli, stærð 69,3 m², byggt árið 1990.

Flutningur hússins er á ábyrgð kaupanda.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is.

Tilboðum skal skila rafrænt á sama netfang eigi síðar en kl. 11:00 miðvikudaginn 21. september 2022 og verða tilboð opnuð á sama tíma.

Umhverfis- og mannvirkjasvið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.