Stofnana- og athafnasvæði við Súluveg og Miðhúsaveg – nýtt deiliskipulag

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir stofnana- og athafnasvæði við Súluveg og Miðhúsaveg.

Skipulagssvæðið afmarkast af reitum sem merktir eru S36 og AT13 í gildandi aðalskipulagi. Markmið með skipulagstillögunni eru að afmarka lóð fyrir dýraspítala nyrst á reit S36 upp við Miðhúsabraut, skilgreina uppbyggingarheimildir á lóð Vegagerðarinnar við Súluveg og afmarka athafnalóðir á reit AT13 ásamt því að setja fram skilmála um uppbyggingu og umgengni og loks að bæta aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda um svæðið.

Skipulagstillöguna má nálgast hér og greinargerð með tillögunni hér.

 

Deiliskipulag athafna-, verslunar- og þjónustusvæðis við Miðhúsabraut, Súluveg og Þingvallastræti – tillaga að breytingu

Samhliða tillögu að nýju deiliskipulagi er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafna-, verslunar- og þjónustusvæðis við Miðhúsabraut, Súluveg og Þingvallastræti skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Breytingin gerir ráð fyrir göngustíg meðfram Súluvegi, suður fyrir metan áfyllingarstöð og áfram meðfram Miðhúsabraut. Gönguþverun verður yfir Súluveg og Miðhúsabraut.

Skipulagstillöguna má nálgast hér.

Tillögurnar verða jafnframt aðgengilegar hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillögurnar á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til og með 24. júní 2022.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan