Skipulagsráð Akureyrarbæjar kynnir tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis við Grænhól skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að lóðin Sjafnargata 2 er stækkuð um tæplega 1200 m2 og byggingarreitur stækkaður fyrir allt að 700 m2 þjónustu- og skrifstofubyggingu auk athafnasvæðis.
Skipulagstillöguna má nálgast hér . Tillagan verður auk þess aðgengileg á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 22. mars til 10. apríl 2023.
Hægt er að skila inn ábendingum um skipulagstillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 10. apríl 2023.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.