Alltaf gaman að leika sér úti
Akureyrarbær auglýsir eftir áhugasömum og traustum aðilum til að gerast dagforeldrar á Akureyri. Um er að ræða daggæslu í heimahúsi og/eða í öðru húsnæði eftir samkomulagi og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Á Akureyri er daggæsla starfrækt í heimahúsum og í húsnæði gæsluvalla.
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi en fræðslusvið í samvinnu við velferðarsvið Akureyrarbæjar veita starfsleyfi til daggæslu. Fræðslusvið sinnir lögbundnu eftirliti með daggæslu og veitir dagforeldrum ráðgjöf. Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði sbr. reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu í heimahúsum https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/907-2005.
Dagforeldrar vinna mikilvægt umönnunar- og uppeldisstarf. Þeir vinna sjálfstætt og sjá um og bera ábyrgð á andlegri, líkamlegri og félagslegri velferð barna í þeirra umsjón.
Gera má ráð fyrir að ferlið við að skila gögnum og afgreiða leyfi geti tekið allt að einum til tveimur mánuðum.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er að finna í þjónustugáttinni. Undir flipanum „Umsóknir, uppsagnir o.fl. eyðublöð“ er að finna flokkinn „Daggæsla - umsókn um leyfi til daggæslu í heimahúsi“.
Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
Nánari upplýsingar gefur Sesselja Sigurðardóttir ráðgjafi á fræðslusviði, netfang sesselja@akureyri.is.