Jólamarkaður Skógarlundar á næsta leiti

Árlegur jólamarkaður Skógarlundar verður haldinn laugardaginn 4. desember kl. 11-15 í Skógarlundi. Auk þess verður markaður á Glerártorgi á fimmtudag og föstudag (2.-3. desember) kl. 13-15:30. 

Til sýnis og sölu eru fjölbreyttar vörur og listaverk sem notendur Skógarlundar hafa unnið að. Sem dæmi má nefna muni úr leir, gleri og tré eins og kertastjaka, blómapotta, jólatré, merkimiða, baðbombur og margt fleira.

Öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og er tilvalið að kaupa listmuni í jólapakka. 

Hvað er Skógarlundur - miðstöð virkni og hæfingar? Í Skógarlundi er fólki með stuðningsþarfir boðin fjölbreytt þjónusta á níu starfsstöðvum: Skapandi starf, vinnuþjálfun, gagnaeyðing, hreyfing, smíðar og handverk, tölvur og rofar, skynörvun, reynsluboltar og tjáskipti. Markmið Skógarlundar eru meðal annars að efla alhliða þroska og sjálfstæði, auka og viðhalda færni til að takast á við athafnir daglegs lífs og bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til hæfingar og virkni fyrir alla. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan