Háskólasvæði - Drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnir hér með skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagi Háskólans á Akureyri.

Skipulagstillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu þriggja stúdentagarða á tveimur til þremur hæðum auk skrifstofubyggingar á einni til fjórum hæðum.

Skipulagstillöguna má nálgast hér . Tillagan verður auk þess aðgengileg á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 18. janúar til 5. febrúar 2023

Hægt er að skila inn ábendingum um skipulagstillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 5. febrúar 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan