Auglýst eftir tilboðum í fyrsta áfanga lóða í Móahverfi

Móahverfi - 1. áfangi
Móahverfi - 1. áfangi

Móahverfi er nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að 1.100 íbúðir á næstu árum. Akureyrarbær auglýsir nú eftir tilboðum í 11 lóðir í fyrsta áfanga auk þess sem auglýstar eru tvær lóðir þar sem úthlutun mun byggja á uppbyggingu íbúða á grundvelli stofnframlaga sbr. lög nr. 52/2016.

Í þessum fyrsta áfanga er áhersla lögð á lóðir fyrir fjölbýlishús af öllum stærðum og gerðum auk nokkurra par- og raðhúsa. Um er að ræða átta fjölbýlishúsalóðir, tvær raðhúsalóðir og þrjár parhúsalóðir þar sem heimilt er að byggja samtals 220-280 íbúðir. Lögaðilar geta boðið í allar lóðirnar en einstaklingar geta eingöngu boðið í parhúsalóðirnar.

Síðar á árinu munu fleiri par- og raðhúsalóðir auk einbýlishúsalóða verða auglýstar.

Fimmtudaginn 16. mars nk. kl. 14-15 verður haldinn kynningarfundur um þessa fyrstu úthlutun lóða í Móahverfi. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsi Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Gestir sem ætla að koma í Ráðhúsið eru beðnir um að skrá sig á með því að senda tölvupóst á skipulag@akureyri.is. Kynningarfundinum verður jafnframt streymt á Teams og verður fundarslóðin auglýst þegar nær dregur.

Útboðsgögn verða tilbúin til afhendingar 16. mars.

Tilboðum í lóðir skal skilað rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar, https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/utbod/auglyst-utbod-loda frá 16. mars og fram til kl. 12 fimmtudaginn 30. mars 2023. Tilboð verða opnuð í Ráðhúsinu kl. 14 sama dag í viðurvist þeirra umsækjenda sem þess óska.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan