Svartfuglinn sestur upp

Lundi í Grímsey. Mynd: Friðþjófur Helgason.
Lundi í Grímsey. Mynd: Friðþjófur Helgason.

Þótt febrúar sé varla liðinn, lætur vorið nú á sér kræla norður við heimskautsbaug. Fyrir um hálfum mánuði fór svartfuglinn að setjast upp í björgunum í Grímsey og þykir það óvenju snemmt. Langvía og stuttnefja fylla þar nú allar syllur og álkan er væntanleg í urðina fyrir neðan.

Svo virðist sem svartfugli hafi fjölgað mjög við heimskautsbauginn á síðustu árum og telja Grímseyingar að fuglinn setjist upp svona snemma til að tryggja sér pláss. Viðmælandi okkar í Grímsey staðhæfir að miðvikudaginn 4. apríl fyrir hádegi sé loks von á lundanum í holurnar á bjargbrúninni en sú staðhæfing er birt án ábyrgðar.

Milt og gott veður hefur verið í Grímsey síðustu daga og dýralífið áberandi fjölskrúðugt. Hvalir hafa gert sig heimakomna við eyjuna og þá einkum hnúfubakur. Sjómenn láta vel af aflabrögðum, rótfiska og segja loðnu vaða um allan sjó.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan