Nyrsta sundlaug landsins

Mynd; Anna María Sigvaldadóttir
Mynd; Anna María Sigvaldadóttir

Sundlaugin í Grímsey hefur nú verið opnuð á ný eftir viðhald, þar sem laugin var m.a. máluð.

Sundlaugin í Grímsey er nyrsta laug landsins, hún er innanhússundlaug eins og flestar þær laugar sem ekki hafa aðgang að jarðhitavatni. Enginn jarðhiti er í Grímsey og því er allt rafmagn framleitt í díselrafstöð, kælivatnið frá stöðinni er síðan notað til að hita upp sundlaugina.

Laugin er opin 3 kvöld í viku og á laugardögum. Í sundlauginni er einnig boðið upp á heitan pott.
Tjaldstæði Grímseyjar er við sundlaugina.

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan