Hvalreki í Grímsey

Mynd: Anna María Sigvaldadóttir
Mynd: Anna María Sigvaldadóttir

Um helgina rak Búrhval að höfninni í Grímsey. Það munu vera um 35 ár síðan hval rak að eyjunni síðast og því um sjaldgæfan viðburð að ræða.

Hræið sem um ræðir er af fullvöxnum tarfi sem gæti verið um 50 tonn. Draga þurfti hræið út úr höfninni með dráttarvél í morgun til að rýma fyrir Sæfara sem var að koma í áætlunarferð til eyjarinnar. Síðar í dag verður það síðan dregið með báti út á haf, en leyfi fékkst fyrir því hjá Umhverfisstofnun því það er einstaklega illa farið og verulega slæm lykt sem af því kemur.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan