Fjárflutningar frá Grímsey

Mynd: Halla Ingólfsdóttir
Mynd: Halla Ingólfsdóttir

Tvö fjárbú eru í Grímsey með alls um 100 kindur auk lamba. Yfir sumarið eru því um 300 kindur í eynni enda beitiland einstaklega gott og grösugt. Lömbin braggast yfirleitt mjög hratt á sumrin og í síðustu viku voru því ríflega 100 lömb send til sumarslátrunar. Til að koma lömbunum til slátrunar þarf að senda þau með ferjunni Sæfara til Dalvíkur, þaðan sem þeim er ekið til Hvammstanga.

Hér má sjá myndskeið er lömbin voru rekin umborð í Sæfara, Grímseyjar ferjuna.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan