Bættar samgöngur

Áætlunarferðum ferjunnar Sæfara frá Dalvík til Grímseyjar hefur verið fjölgað úr þremur í fjórar á viku yfir vetrartímann og þær eru fimm á viku á sumrin.

Einnig hefur fargjald fyrir fullorðna verið lækkað eða úr 4.850 kr. í 3.500 kr.

Þessar breytingar verða sannarlega til að bæta samgöngur við Grímsey og vonandi leiða þær einnig til þess að heimsóknum ferðafólks til þessa útvarðar Akureyrarkaupstaðar í norðri fjölgi. Sveitarfélögin Akureyri og Grímsey voru sem kunnugt er sameinuð vorið 2009.

Verðskrá og áætlun Sæfara.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan