Upplýsingar um viðburð
- Hvernig leit sjónvarspdagskráin út árið 1995?
- Símaskrá, hvað er það?
- Og tískan í Hagkaups-bæklingnum!
Amtsbókasafnið á Akureyri er svokallað skylduskilasafn, sem þýðir að varðveita skuli eitt eintak af öllu prentuðu efni hér á Íslandi.
Frá og með mánudeginum 6. maí og út mánuðinn mun standa yfir sýning á varðveislueintökum úr skylduskilum. Þar kennir ýmissa grasa!
Efni í skylduskilum:
Bækur, barnabækur, kennslubækur, hljóðbækur, tímarit, árbækur, ársskýrslur, fréttabréf, sjónvarpsdagskrár, glanstímarit, dagblöð, héraðsblöð, kosningablöð, skólablöð, myndablöð og hverfablöð, skýrslur, landakort, veggspjöld og smáprent, t.d. bæklingar, auglýsingar, verðlistar, leikskrár, sýningarskrár, tónleikaskrár, póstkort, jólakort og spil.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Nánari upplýsingar um skylduskil:
- Skylduskilin eru ekki lánuð út.
- Viðskiptavinir geta þó fengið afnot af skylduskilum, gegn framvísun bókasafnsskírteinis.
- Safninu berast á ári hverju mikið magn af skylduskilum. Á bilinu 70-100 kassar á ári. Þessi skylduskil dreifast um geymslur safnsins og fer töluverður hluti þeirra í geymslu í kjallara safnsins.