17.apr

Spilaklúbbur fyrir 9-13 ára

Spilaklúbbur fyrir 9-13 ára

Þekkir þú barn sem hefur gaman af að spila? 

Á nýju ári fer Amtsbókasafnið aftur að stað með spilaklúbb fyrir börn á aldrinum 9-13 ára. Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Næsti spilafundur þessar árs verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl kl. 17:00. Hrönn Björgvinsdóttir, bókavörður, mun leiða hópinn. Lengd hvers spilafundar fer svolítið eftir spili hverju sinni. 

Allir krakkar á aldrinum 9-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald. 

Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.

Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilaklúbbsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@akureyri.is

Spilaklúbburinn mun hittast á eftirfarandi dögum:

  • 9. jan.
  • 23. jan.
  • 6. feb.
  • 20. feb.. 
  • 6. mar. 
  • 20. mar.
  • 3. apr. 
  • 17. apr.
  • 15. maí

Sjáumst hress!