Upplýsingar um viðburð
Búahaha... !!!
Dagarnir 31. október - 3. nóvember verða afar hrollvekjandi á hinu 191 árs gamla Amtsbókasafni. Bókasafnsdraugurinn okkar er nefnilega endurnærður eftir bæði ánægjulega og ógnvekjandi hrekkavökudaga í fyrra og hefur því ákveðið að endurtaka leikinn nú ár. Nú á dögunum fór draugsi okkar aftur á stjá og dró fram allan þann safnkost sem honum þykir hvað óhugnanlegastur. Bækur, kvikmyndir, spil og fleira - allt er þetta mjööög draugalegt!
Ýmislegt hrollvekjandi verður í boði í kringum hrekkjavökuna í ár:
- Hrekkjavöku-ratleikur 31. október - 3. nóvember.
- Vikuleg sögustund í barnabókadeild, fimmtudaginn 1.nóvember kl. 16:30.
- Hrollvekjandi sögustund fyrir börn 8 ára og eldri, fimmtudaginn 1.nóvember kl. 17:00. Þá mun starfsfólk Amtsbókasafnsins klæða sig upp í hrekkjavökubúninga og hvetur unga safngesti (líka þá sem eru ungir í hjarta) til að gera slíkt hið sama.
- Kvikmyndin Nosferatu frá árinu 1922 verður sýnd í glugga Amtsbókasafnsins aðfaranótt laugardagsins 1. nóvember, gestum og gangandi til hrollvekjandi ánægju.
Við hlökkum til að sjá þig... ef þú þorir! ;)
Ath. Birt með fyrirvara um breytingar.