Vel lukkað Norðurheimskautsbaugshlaup

Allir klárir í hlaupið. Mynd: Magnús Bjarnason.
Allir klárir í hlaupið. Mynd: Magnús Bjarnason.

Á þriðja tug hlaupara tók þátt í fimmta Norðurheimskautsbaugshlaupi TVG-ZIMSEN sem fór fram í Grímsey um síðustu helgi og hafa nú vel á annað hundrað manns tekið þátt frá því að fyrsta hlaupið fór fram haustið 2012. Hlaupið hefur skapað sér fastan sess í hlaupaflóru landsins og þátttakendur eru einróma um að það sé með skemmtilegri almenningshlaupum á Íslandi.

Boðið var upp á tvær vegalengdir; einn hring sem er um 11,5 km og tvo hringi eða rétt um 23 km. Sérstaka athygli vakti vaskleg frammistaða hins 15 ára Egils Bjarna Gíslasonar úr hlaupafélaginu Kára en hann kom fyrstur í mark eftir tvo hringi á aðeins einni klukkustund og 43 mínútum sem er glæsilegur tími. Hluti keppenda kom með flugvél frá Norlandair og létu flugmennirnir Guðmundur Emilsson og Bjarni Helgason ekki sitt eftir liggja og skelltu sér einn hring.

Nöfn þeirra sem náðu bestum tíma í hverjum flokki:

Karlar 23 km (2 hringir)

 

1. sæti: Egill Bjarni Gíslason                        

2. sæti: Valdimar Halldórsson                       

3. sæti: Heiðar Halldórsson                     

 01:43:24

  01:56:18

02:01:17

Konur 23 km (2 hringir)

 

1. sæti: Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir          

2. sæti: Jessica Shadian                                

3 .sæti: Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir    

02:04:46

 02:10:00

02:13:18

Karlar 11.5 km (1 hringur)

 

1. sæti: Gunnar Kristinn Jóhannsson            

2. sæti: Páll Þormar                                        

3. sæti: Bjarni Helgason                                

 00:58:32

01:00:41

01:02:07

Konur 11.5 km (1 hringur)

 

1. sæti: Sigríður Steinbjörnsdóttir                  

2. sæti: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir                        

3. sæti: Mayflor Perez Cajes                         

01:13:53

01:14:37

  01:20:59

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan