Þjóðhátíðardagur Grímseyinga

Daniel Willard Fiske.
Daniel Willard Fiske.

Velgjörðarmaður Grímseyinga, Daniel Willard Fiske, var fæddur þennan dag árið 1831 og er fæðingardagur hans eins konar þjóðhátíðardagur eyjarskeggja. Af því tilefni verður haldið kaffisamsæti í félagsheimilinu Múla klukkan 18 í dag en fyrir því stendur kvenfélagið í Grímsey og hefur gert svo lengi sem elstu menn muna. Börnin í Grímsey munu sjá um skemmtiatriði.

Í Grímsey er nú blíðskaparveður. Þessa vikuna hafa verið þar tveir gestakennarar frá Dalvík og um helgina næstu kemur Zumbakennari út í eyju til að kenna fólki þann hressandi og styrkjandi dans sem Zumba er.

Hér má sjá upplýsingaskilti um Grímsey og Fiske sem hafa verið sett upp fyrir ofan höfnina í eyjunni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan