Styrkir í byggðaþróunarverkefnið Glæðum Grímsey

Mynd: María Tryggvadóttir
Mynd: María Tryggvadóttir

Verkefnisstjórn byggðaþróunarverkefnisins Glæðum Grímsey auglýsir styrki vegna verkefnisins fyrir árið 2016 og 2017, eða kr. 6.000.000. Styrkfénu er ætlað að styrkja verkefni sem falla að áherslum byggðaverkefnisins.

Stefnumótun og helstu markmið verkefnisins má sjá á www.grimsey.is og þar er einnig að finna sniðmát fyrir styrkumsóknir.

Ekki er gerð krafa um mótframlag en jafnan er það talið verkefnum til framdráttar ef þau laða fram krafta og aukið frumkvæði þátttakenda, í samræmi við þá hugsun sem liggur til grundvallar verkefninu Brothættar byggðir. Ennfremur styrkir það verkefni ef þau leiða til samstarfs aðila innan héraðs og/eða til samstarfs við aðila utan héraðs. Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Ennfremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.

Frekari upplýsingar um verklag vegna styrkja má finna á vef Byggðastofnunar í viðauka við verklýsingu verkefnisins:
http://www.byggdastofnun.is/static/files/Brothaettar_byggdir/verklysings/bb2-vidauki-v-styrkir-utg-2-1-mars-2016.pdf  

Umsóknum um styrki skal skila rafrænt á netfangið helgairis@akureyri.is fyrir 31. maí 2017.  Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnisstjóri í s. 690-2333 eða á netfanginu helgairis@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan