Söguvörður í Grímsey

Söguvarðan um Fiske.
Söguvarðan um Fiske.

Settar hafa verið upp tvær nýjar söguvörður í Grímsey. Á annarri þeirra er fjallað almennt um eyjuna og byggðina þar en á hinni um velgjörðarmann Grímseyinga, Daniel Willard Fiske. Söguvörðurnar eru sambærilegar við þær sem settar hafa verið upp á Akureyri en skiltin eru unnin af Akureyrarstofu og Minjasafninu á Akureyri fyrir styrk sem Kvenfélag Grímseyjar hlaut úr Menningarsjóði Eyþings.

Hönnunarstofan Blek sá um frágang á skiltunum en prentun og uppsetning þeirra var í höndum framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar.

Á heimasíðunni Visitakureyri.is má skoða söguvörðurnar í Grímsey og þær sem settar hafa verið upp á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan