Mikil fjölgun ferðamanna í Grímsey

Mynd: Friðþjófur Helgason
Mynd: Friðþjófur Helgason

Samkvæmt farþegatölum frá Grímseyjarferjunni Sæfara voru farþegar ferjunnar 3.088 árið 2007 en 6.535 árið 2012. Farþegafjöldinn hefur því rúmlega tvöfaldast á 5 árum og eru erlendir farþegar í meirihluta 6 mánuði ársins. Til viðbótar hafa skemmtiferðaskip einnig viðkomu í Grímsey og er von á fjórum þeirra næsta sumar. Árið 2008 var tekin í notkun ný Grímseyjarferja fyrir 108 farþega og siglir hún þrisvar sinnum í viku á milli Dalvíkur og Grímseyjar allan ársins hring.

Flugfélagið Norlandair flýgur á milli Akureyrar og Grímseyjar og er farþegafjöldi þess svipaður á milli ára en þó benda forsvarsmenn félagsins á að áhugi útlendinga yfir vetrartímann er greinilega að aukast. Yfir sumartímann er hlutfall erlendra farþega á bilinu 55%-62% af heildarfjöldanum þegar litið er til áranna 2008-2012. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan