Jarðskjálfti austur af Grímsey

Jarðskjálfti austur af Grímsey.
Jarðskjálfti austur af Grímsey.

Snarpur jarðskjálfti, af stærð 5,5, varð kl. 00.59 þann 2. apríl með upptök í Skjálfandadjúpi, eða um 15 km austur af Grímsey. Mikil eftirskjálftavirkni hefur fylgt í kjölfarið og varð stærsti eftirskjálftinn, 4,3 að stærð, kl. 01.13. Stærsti skjálftinn fannst víða á Norðurlandi og bárust tilkynningar til að mynda frá Grímsey, Húsavík, Raufarhöfn, Mývatnssveit, Akureyri og Sauðárkróki.

Dregið hefur úr virkninni eftir því sem liðið hefur á morguninn. Þó koma af og til eftirskjálftar um og yfir 3 að stærð. Upptökin eru á brotabelti sem liggur frá Öxarfirði og norður fyrir Grímsey, svonefnt Grímseyjarbelti. Skjálftahrinur eru mjög algengar á þessu svæði. Vel verður fylgst með virkninni en ekki er útilokað að fleiri stórir skjálftar geti fylgt í kjölfarið.

Frétt af www.vedur.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan