Grímseyjarkirkju færð Guðbrandsbiblía

Í dag færðu hjónin Hrafnhildur A. Hallgrímsdóttir og Kolbeinn I. Arason Grímseyjarkirkju veglega gjöf í formi eintaks af Guðbrandsbiblíu.

Bókina erfði Hrafnhildur eftir móður sína Önnu Ragnheiði Fritsdóttur Berndsen eða eins og segir í gjafabréfinu:

Frá Hrafnhildi Önnu Hallgrímsdóttur
Guðbrandsbiblían var gefin út 1956-1957 í 500 eintökum og er þessi númer 399.

Ég fann til með íbúum Grímseyjar þegar kirkjan brann og ákvað í því samhengi að gefa Miðgarðakirkju þennan grip.
Saga þessarar biblíu. Faðir minn Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum f. 22.06.1901 d. 03.12.1983 gaf móður minni, Önnu Ragnheiði Fritsdóttur Berndsen f. 19.12.1912 d. 04.03.1992 frá Skagaströnd biblíuna, ekki vitað hvaða ár.

Ég eignaðist biblíuna við andlát móður minnar 1992.

Njótið vel kæru Grímseyingar
Hrafnhildur A. Hallgrímsdóttir
Kolbeinn I. Arason


Þessa dagana er verið að steypa grunn að nýrri kirkju og gengur verkið vel. Vonir standa til að ytra byrði kirkjunnar verið komið upp fyrir lok september og innviðir hennar verði orðnir klárir fyrir næsta sumar. Margir hafa lagt kirkjunni lið og stendur söfnunarátak yfir svo hægt verði að klára hana að fullu. Hægt er að fylgjast með gangi söfnunarinnar á vef Grímseyjar og þar er einnig hægt að nálgast upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja verkefnið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan