Grímseyjardagurinn 2012

Mynd: Ragnar Hólm
Mynd: Ragnar Hólm

Grímseyjardagurinn verður haldinn öðru sinni helgina 1.-3. júní nk. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá sem byggist á grímseyskum hefðum. Farið verður í  ratleiki, siglingar, kríueggjaleit og fleira. Vanir menn síga í björg og sækja egg. Dagskránni lýkur síðan með glæsilegu sjávarréttahlaðborði í félagsheimilinu Múla að kvöldi laugardagsins.

Undirbúningur fyrir Grímseyjardagana er hafinn fyrir allnokkru síðan en Grímseyingar standa alfarið að hátíðinni og taka vel á móti gestum. Tveir starfsmenn Akureyrarstofu voru í eyjunni síðastliðinn þriðjudag að stilla saman strengi með Grímseyingum og við það tækifæri tók Ragnar Hólm meðfylgjandi myndir.

Nánari upplýsingar um Grímseyjardagana, ferðir út í eyju og fleira, er að finna á visitakureyri.is.

Grímsey 8. maí 2012 Grímsey 8. maí 2012 Grímsey 8. maí 2012 Grímsey 8. maí 2012 Grímsey 8. maí 2012 Grímsey 8. maí 2012 Grímsey 8. maí 2012 Grímsey 8. maí 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan