Fyrirhuguðum fundi frestað

Mynd: Friðþjófur Helgason.
Mynd: Friðþjófur Helgason.

Fyrirhuguðum fundi sem halda átti í Grímsey á morgun, miðvikudaginn 28. janúar, og blaðamannafundi á Akureyri morguninn eftir, hefur verið aflýst af óviðráðanlegum orsökum.

Stefnt er að því að boða annan fund með einhverju sniði við fyrstu hentugleika allra sem að málinu koma.

Í millitíðinni halda bæjarfulltrúar og starfsfólk Akureyrarkaupstaðar, ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Byggðastofnunar, áfram að vinna að lausn yfirvofandi vanda í atvinnumálum Grímseyinga í nánu samráði við heimamenn.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan